19. júlí 2009 klukkan 12:50
Halló kalló!
Ég er að vonast eftir smá umræðu um fermingarmótið okkar á næsta ári. Held að við séum öll sammála um að hittast en ekkert ákveðið hvort það sé bara við eða með fjölsk og hvenær. Ég bauð mig fram að skipuleggja þótt ég sé langt í burtu og ef Heimir er til í að vera með mér þá er það bara flott. En ég vil hafa þessa umræðu bara á einum stað og erum við byrjuð á facebook; http://www.facebook.com/home.php?ref=home#/group.php?gid=44077758897 og ég held að það sé betra að hafa þessa umræðu á einum stað. Mig langar mikið að heyra í ykkur og fá álit ykkar hvernig við ættum að hafa þetta skemmtilega reunion og hvort fleiri vilja vera með í að skipurleggja.
Kv Eva Björk
Eva B.Jónsdóttir
04. janúar 2009 klukkan 21:34
Þetta virðist ætla að verða frekar rólegt hjá okkur, en engu að síður, seinbúið gleðilegt nýtt ár héðan frá mér. Kanski að stefna á að vera aðeins aktívari hérna á nýju ári.
elmar
23. desember 2008 klukkan 17:39
Gleðileg Jól og frasælt komandi ár.
Ólafur Bjarni
06. september 2008 klukkan 16:38
Já hann Elli gull eins og við þekkjum hann best á afmæli í dag:-) Tillykke með daginn
Annars er gott að frétta héðan frá Odense, skólinn byrjaður aftur og er það bara fínt og hlakkar mig til að takast á við mjög svo erfiða önn. Sumarið var æði, fór ekkert heim en fékk marga góða gesti sem gerði sumarið ennþá betra. Svo fékk ég voðalega skemmtilegt skilaboð fyrir nokkrum dögum frá honum Frey og var hann að spyrja hvað er að frétta af okkur öllum. Ég lét hann að sjálfsögðu vita af þessari síðu okkar þannig að ég skora á þig Freyr að segja okkur hvað hefur dregið á þína daga...........
Over and out
Eva B.Jónsdóttir
23. ágúst 2008 klukkan 21:30
Þessi færsla er ekki skrifuð af því tilefni að ég eignaðist plötuna Endurfundir sem ég sá í Kolaportinu í dag. Frekar af því tilefni að ég og Heimir erum sestir á sama skólabekk aftur. Svona næstum því eins og í gamla daga nema hvað það er meira hár alstaðar. Mér þótti alveg sérstaklega gaman að sjá hann mæta í skólann í dag og ég hlakka til að eyða vetrinum í bókfærslu með honum, gangi þér vel vinur.
Og að sjálfsögðu, Áfram Ísland.
elmar
10. júlí 2008 klukkan 19:43
Ég var að velta einu fyrir mér. Eftir að hafa skoðað árgangsblogg '75 árgangsins og sá þar að þau hafa skrifað niður upplýsingar um þau sjálf-sniðugt:) Afhverju gerum við þetta ekki líka á aukasíðu hér? Ég skal byrja. Ég ætla svo líka að senda tölvupóst á þá sem aldrei virðast koma hér inn og fá upplýsingar hjá þeim. Þetta þarf ekkert að vera e-ð mikið, bara svona hvað hefur á dagana drifið, ef einhver á börn o.s.frv.
Endilega verið með.
Svanfríður
Svanfríður E.Arnardóttir
04. júlí 2008 klukkan 17:16
Hej Benni
Ertu til í að senda mér sms því einhverra hluta vegna þá er ég ekki með símann þinn lengur!
Annars er gott að frétta af okkur litlu fjöskyldunni í Odense. Prófin gengu eins og í sögu og var þetta löng og ströng törn sem er loksins búin. 1 ár búið og bara aðeins 2 og hálft eftir! En núna erum við bara að njóta þess að vera til, sleikja sólina sem er um 32 gráður eins og er, kannski aðeins of heitt fyrir rauðhærðu og fekknóttu stelpuna, en ég lifi þetta af:-) svo erum við að vinna inn á milli sem er fínt. Heimsókna tíminn er að byrja og eftir prófin þá fórum við loksins í langþráða útilegu þar sem við tjölduðum í garðinum hjá Elsu Láru og fjölsk sem voru með sumarhús á Jótlandi, bara gaman:-) svo komu þau við hjá okkur á leiðinni til Köben, alltaf gaman að fá heimsókn... ef þið eruð á ferðinni:-)
Já og svo er mjög leiðinlegt að heyra með Bóbó, en hann var orðinn mjög veikur eins og Svanfríður sagði og var þetta kannski bara best, alltaf leiðinlegt að sjá á eftir góðu fólki og eigum við okkar góðu minninga með honum.
Ég vona að einhver ykkar séu akkorat núna á æskuslóðum, Humarhátíð, en ég skellti mér í fyrra þar sem ég var að vinna á Íslandi í gömlu vinnunni minni og hitti marga og það var svvvvoooo ótrúlega gaman og hitti ég meða annars þessar skvísur sem ég hef nú ekki hitt mjög lengi;


En annars segi ég gleðilegt sumar og vona innilega að það verði af hittingi hjá ykkur, munið bara eftir myndavélinni! og hafið það gott í sumar.
Hilsen, Eva Björk
Eva B.Jónsdóttir
20. júní 2008 klukkan 21:44
Sæl öll.Bóbó dó í dag. Hann hafði verið veikur í þónokkurn tíma.
Við eigum öll okkar minningar um Bóbó og öll eigum við sömu náttborðin sem við gerðum undir hans handleiðslu :)
Góða helgi öllsömul. Svanfríður
Svanfríður E.Arnardóttir
28. maí 2008 klukkan 17:44
Þá er það ákveðið..nefndin er búin að funda.
Hverjir komast ?? og hverjir komast ekki og afhverju ekki??
kv
Heimir
Heimir Haralds
25. maí 2008 klukkan 20:24
Hæ hæ allir saman.
Mér líst mjög vel á að hittast í sumar og bíð spennt eftir dagsetningu. En var að pæla þar sem ákveðin er dagsetning fyrirfram hvort ekki væri best að hittast inni á einhverjum stað og fá okkur að borða og svo eitthvað meira... því það gæti ringt þennan ákveðna dag 
Vona samt að ég sé ekki að skemma neitt sem ákveðið hefur verið.
Endilega komið með tillögur ef þið hafið einhverjar
Kveðja Ásta Huld
Ásta Huld Eiríksdóttir